Jæja sælt veri fólkið og vonandi hafið þið lesendur það sem best, þrátt fyrir allt. Ég veit að ég gaf út þá yfirlýsingu snemma í síðasta mánuði um það að ég skildi ekki tjá mig um ástand þjóðarbúsins eða bara almennt um stöðu mála í landinu, þó með ákveðnum undantekningum eins og sjá má hér að neðan.
(Bein tilvitnun frá 10.10.0
„... og mun ég því ekki minnast á neitt tengt þeim málum, nema ef ég get ekki þagað, af gleði, hneikslun, pirringi eða einhverju af þeim tilfinningum sem nuddað er í okkur þessa síðustu daga.”
Svo að nú nota ég mína góðu og gildu varnagla og segi: „Ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur” !!!
Ekki vegna hörmulegs fjárhagsklúðurs íslenskra stjórnvalda! Ekki vegna þess að bankinn sem hefur fjármál mín í hálstaki er á hryðjuverkalista hjá Bretum! Ekki vegna þess að hver bankastjórinn af öðrum var með 40-65 milljónir á mánuði og maður lét það yfir sig ganga, þegjandi og hljóða laust, en var sjálfur ekki einu sinni með klink í vösunum til að redda mjólk á heimilið! Nei ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur vegna þeirra ótrúlegu, trúu, hreinu og innilegu hjálpar Færeyinga, sem að enn og aftur ættla að styðja okkur á erfiðum tímum og fundist það ekki nema sjálf sagt að þeir styðji sína bræður og frændur á Íslandi. “Og kannski í framtíðinni, ef Færeyjar lenda í viðlíka vandræðum, eiga Íslendingar eftir að koma okkur til aðstoðar” Segir Hans Andreasen vert á veitinga- og skemmtistaðnum Glitni (pínu skondið) í Þórshöfn. Fréttablaðið 30.10´08

Og þar stendur einmitt hnífurinn í kúnni hjá mér!!
Höfum við styrkt Færeyinga í þeim erfiðleikum sem þeir hafa staðið í síðastliðin 10-20 ár???
Jú alveg rétt leifðum þeim að fiska á eitthverju ómerkilegu fiskisvæði úti á ballar hafi í ákveðinn tíma! VÁÁÁÁÁÁ !!!! Því líku öðlingarnir við Íslendingar, skil bara ekki afhverju Davíð eða einhver álíka jólasveinn, hafi ekki fengið Gjafmildisverðlaun Nóbels fyrir þetta stóra framlag okkar Íslendinga til einu þjóðarinnar í heiminum, sem hefur einhvern snefil af áhuga til að hjálpa okkur og styðja, bæði í dag og í gegnum undanfarin ár.
Færeyingar studdu okkur í Vestmannaeyjar gosinu, þeir settu á stað söfnun vegna snjóflóðanna og þá sjálfir í bullandi kreppu. Öll færeyska þjóðin sameinaðist í því að taka á sig lækkun launa til að styrkja stöðu eyjanna. En gátu samt sýnt stuðning sinn í verki þegar á reið hjá okkur. Skömmumst okkar og munum og þökkum fyrir frændur okkar og vini Færeyinga!!!
Takk fyrir okkur Færeyingar þetta er ómetanlegur stuðningur!!!